Hulda Guðný Jónsdóttir

18. nóvember 2004

Af hverju???

Af hverju fór ég í kennaranám? Þegar stórt er spurt er lítið um svör. Þið sem þetta lesið vitið allt um kennaramálið þannig að ég er ekkert að eyða plássi á síðunni minni til að skrifa um það. Á mánudaginn mættu kennarar í Giljaskóla ekki til vinnu vegna "veikinda" svo að lítið varð úr kennslu hjá mér þann daginn. Annars held ég að kennarar séu smátt og smátt að átta sig á að þeir fái í raun engu breytt og verða annað hvort að una hag sínum vel eins og staðan er í dag eða að segja upp eins og sumir hafa gert. Ég hreinlega veit ekki hvað ég gerði ef ég væri í þessum sporum en raunin er sú að það er óskaplega stutt þangað til ég verð það. Kannski ég fari bara að læra eitthvað meira þegar ég er búin með kennarann. Nei ætli þetta sé ekki fínt í bili en hver veit hvort ég eigi ekki eftir að bæta einhverju við seinna.
Nú er vonandi bara vika þangað til Siddi kemur heim aftur JIBBÍ (þá verður kannski ekki mikið bloggað). Annars hefur eldri bróðir minn og yngri systir mín verið dugleg að heimsækja mig á kvöldið og grípum við þá í spil og spilum frameftir nóttu.
Þið sem lesið þessa síðu megið alveg commenta hjá mér og ef þið hafið lesið commentin sem áður hafa verið skrifuð þá er fátt heilagt svo látið ljós ykkar skína.

Kveð í bili, er að fara að kenna í fyrramálið.

10. nóvember 2004

Jæja er ekki allt gott að frétta hjá ykkur þarna úti?

Dóri minn ég gæti ALDREI fargað IOGT könnunni þar sem ég tel hana ekki lengur sem mína eign heldur þína þar sem þú ert og hefur alltaf verið og munt alltaf vera stúkumaður. Svo fékkstu smá bónus þar sem ég bætti þinni bloggsíðu hér til hliðar.

Annars er allt nokkuð gott í fréttum (fyrir utan verkfall). nema þó helst það að um kvöldmatarleitið þurfti ég að fara með Adda minn upp á sjúkrahús þar sem hann datt hér í stiganum og slasaði sig á fingri (þeir sem núna hlægið, HÆTTIÐ ÞVÍ) hann er að líkindum ekki brotinn greyið en þarf að fara í myndatöku í fyrramálið. Það sem grátlegast var við þessa ferð á sjúkrahúsið var það að sami læknir skoðaði Adda og skoðaði mig um daginn og spurði hann hvort slys á fingrum væri ættgengt. Svo þið sem eruð þarna úti og eruð skyld mér á einhvern máta PASSIÐ VEL Á YKKUR FINGURNA!!!!

Annað er það að túrinn hjá Sidda verður að öllum líkindum lengdur og í stað þess að koma eftir helgi þá kemur hann örugglega ekki fyrr en eftir hálfan mánuð. Hvar eru þessar hjálpartækjabúðir???????????????

Annars ekkert meira í fréttum.