Hulda Guðný Jónsdóttir

24. mars 2004

ohhhh hvað get ég verið mikill klaufi ég var ekki fyrr búin að setja inn síðasta póst þá áttaði ég mig á því að ég gleymdi að lesa hann yfir...... aarrrgggghhh jæja en það eru stafsetningavillur í honum og er um að ræða sömu villuna á tveimur stöðum en ég setti enn ý í stað í í sÝning... jæja batnandi mönnum er best að lifa..

Jæja nú er nær liðinn mánuður síðan ég skrifaði eitthvað hér síðast svo að það leiðir af sér að ég er enginn hevý bloggari... en jæja hvað með það nóg annað hefur verið að gerast hjá mér og má þá helst nefna nemendasíningu í faginu LHF 0153 sem haldin var í Ketilhúsi laugardaginn 20. mars. Síningin gekk mjög vel og aðsókn var meiri en nokkurt okkar átti von á.
Þessi síða mín hér tekur hægum breytingum eins og sjá má en þetta er einungis eitthvað fikt í mér þegar ég þarf að taka mér pásu frá lærdómnum.
Ef einhver fylgist með þessari síðu má hann/hún vinsamlega láta mig vita svo ég geti fylgst með hvort einhver annar er þarna úti.