Hulda Guðný Jónsdóttir

28. mars 2005

Á bólakafi

Jæja nú er ég nýkomin frá Grenivík þar sem ég var til að sökkva mér í vinnu við lokaritgerð. Það gekk bara nokkuð vel að gleyma sér í vinnu en veðrið var allt of gott til að hanga inni allan daginn þannig að af og til fór ég með mömmu í göngutúr.

Siddi fór á sjó þó Sléttbakur hafi verið seldur en hann fór að systurskipið sem heitir Þór og er frá Hafnarfirði (það skemmir ekki nafnið á skipinu). Þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur á að ég vanræki hann því hann kemur örugglega ekki heim fyrr en lokaritgerð hefur verið skilað. Ég þarf þá bara að hafa áhyggjur á að ég sé að vanrækja börnin.

Það þarf varla að fara fleiri orðum um veðurblíðuna sem hefur verið um páskana en það var jafnvel glæsilegt veður á Grenivík svo þið sem hafið mest haft út á Grenivík að setja sjáið að veður getur líka verið gott þar það er varla hægt að tala um að það hafi verið hafgola.

Jæja ég ætla að slappa af í kvöld og góna á sjónvarpið.

8. mars 2005

Ekkert gerist

Halló halló

Ég veit að ég hef ekkert bloggað í mánuð og aðalástæðan fyrir því er að ég hef ekkert að segja. Eldhúsið er orðið fínt þ.e. búið í extreme makeover.

Lokaritgerðarsmíð gengur svona la la.

Siddi fór aftur á sjó áðan og í þetta skipti á Árbak þannig að hann verður ekki lengi úti núna en svo fer hann eflaust aftur á Sléttbak því hann er víst ekki seldur enn.

Jæja ekkert meira í bili, þið verðið að fara að segja mér eitthvað skemmtilegt svo ég geti talað um eitthvað.