Hulda Guðný Jónsdóttir

19. janúar 2004

Nú hefur mér tekist að setja dagsetningar á íslensku. Það er bara gaman að prófa sig áfram með þetta á meðan ekkert annað er að gera í heimalærdómi.

17. janúar 2004

Nú er ég fær í flestan sjó. Mér hefur tekist að setja linka á aðrar síður og virðast þeir virka nokkuð vel (þökk sé Sigrúnu).
Er þá ekki málið að fara að vinda sér í svo sem eina heimasíðu.

Nú er ég búin að koma inn teljara á síðuna en það tók töluverðan tíma og mikið fikt. Hvernig fer ég að því að velja hvar hann á að vera á síðunni?
Svo er bara að fikta meira og sjá hvort ég komi ekki einhverjum linkum inn á síðuna.

Jæja þá er ég búin að gera mína fyrstu bloggsíðu en mér finnst eitthvað vanta á hana. Ég hef verið að reyna að setja inn „linka" en hef ekki tekist það. Eins hefur mér mistekist að setja teljara á síðuna. Ef einhver getur útskýrt fyrir mér hvernig á að gera það þá er öllum ábendingum vel tekið.

14. janúar 2004

jæja þá er bara að sjá hvernig þetta virkar