Hulda Guðný Jónsdóttir

7. febrúar 2005

Jæja jæja

Hef ekki nennt að blogga í langan tíma núna og því ætti ég að hafa frá einhverju að segja. hmmmm.. jú háls- og nefkirtlar voru teknir úr Adda þann 20 jan. og var hann frá námi í rúmlega viku en hann var ekki nema rétt byrjaður í skólanum aftur þegar hann fékk flensu s.s. nú um helgina og er hann aftur frá skóla.
Siddi kom í land fyrir viku síðan en óvíst er hvenær hann fer aftur á sjó því dallurinn var seldur.....
Við erum núna í stórframkvæmdum því nú um helgina lögðum við parket á stofuna og nú í morgun fórum við í að rífa niður allar hurðir á eldhússkápunum því þær eru að fara í Extreme Makeover.
Svo er það náttúrulega blessaður lærdómurinn en það gengur voðalega hægt með blessaða lokaritgerð, svo kannski er ekki seinna vænna en að drífa sig á bókasafnið til að nálgast meira lesefni.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim