Hulda Guðný Jónsdóttir

30. október 2007

á eg að byrja aftur að blogga???

Ég hef verið spurð að því hvort ég ætli ekki að byrja aftur að blogga en ég veit ekki hvort ég nenni því. Ekkert gerist hvort sem er hjá mér nema að Brynja sis spyr hvort ég sé ekki að fara að blogga eða hvort ég sé búin að lesa bloggið hennar. Aron spyr hvort ég eigi virkilega bloggsíðu þar sem hann slysaðist inn á hana í tölvutíma um daginn (svo að það er bannað að vera með dónaskap hér). Óskar hefur ekki verið nettengdur í nokkrar vikur og þar fyrir utan var hann örugglega hættur að athuga hjá mér bloggið.

Annars hefur lítið gerst síðan ég bloggaði síðast. Ég er ennþá að vinna í sérdeild Síðuskóla, ég bý á sama stað að vísu komin á nýjan bíl síðan síðast. Búin að selja fellihýsið sem ég keypti og fékk hjólhýsi í staðinn. Hef ekki fjölgað mannkyninu og sem betur fer ekki fækkað því heldur.

Annars læt ég þetta duga í bili og sé svo til hvort ég komi til með að blogga aftur síðar.

2 Ummæli:

Blogger Patzy sagði...

já, hvernig væri það?

3. nóv. 2007, 23:12:00  
Blogger Lifur sagði...

Nei vertu ekkert að því

20. mar. 2009, 15:56:00  

Skrifa ummæli

<< Heim