Hulda Guðný Jónsdóttir

6. janúar 2005

Gleðilegt nytt ar

Halló halló það líður alltaf lengri tími á milli blogga hjá mér. Það ætti í raun að þýða að ég hefði frá einhverju meira að segja en það er nú ekki svo. Ég er búin að vera að drepast úr leti öll jólin og nánast gert ekki neitt. Veðrið var nú ekki til að hrópa húrra yfir og því komst ég ekki einu sinni til Grenivíkur á jóladag og beið sú ferð til þriðja í jólum.
Gamlárskvöld var einnig rólegt en borðað var nóg af hreindýrakjöti sem ég sjálf eldaði og tókst það nokkuð vel að mínu mati (og annarra).
Nú er ég að undirbúa 11 ára afmæli Arons Þórs en það ber upp á næstkomandi laugardag.
Þangað til næst, lifið heil.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim