Hulda Guðný Jónsdóttir

11. desember 2004

AAAArrrrrrrrggggggggg

Jæja þvílík törn sem hefur verið í gangi hér og því miður er henni langt frá því að vera lokið. Æfingakennslu minni lauk síðastliðinn þriðjudag með því að við buðum foreldrum að koma til að heyra börn sín kynna það verkefni sem við vorum búnar að vinna með þeim. Það var ótrúlega góð mæting þar sem kynningarnar voru annars vegar klukkan átta um morguninn og hins vegar klukkan tuttugu mín. í tíu eru engir að vinna lengur? hehehehe. Ég náði að stama út úr mér smá kynningu en þetta gekk svo allt saman ágætlega og fengum við lof fyrir frá foreldrunum.
Verkefnavinna gengur ágætlega en virðist ég hægja á þeim sem ég er að vinna með þar sem ég fer í próf næstkomandi miðvikudag en ekki þær og þykir mér það miður svo ef þið lesið þetta SORRY. Annars reyni ég svolítið að deila niður mínum tíma eins og að læra fyrir próf í ákveðinn tíma, vinna í verkefninu þar á eftir, segja hæ við börnin, syngja eitt jólalag og svo aftur í lærdóminn. Inn í þetta þarf ég svo að troða matargerð, þvotti og öðrum verkum sem maður kemst engan vegin hjá að gera.
Siddi er semsagt farinn aftur á sjóinn svo hann getur lítið gert hér heima á meðan og er hans ekki von fyrr en á Þorláksmessu svo að þegar törnin hjá mér er búinn þá þarf ég að skreyta, skúra og jafnvel baka.
Svo það gæti liðið einhver tími í næsta blogg, en þangað til lifið heil og passið ykkur á jólastressinu.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim