Hulda Guðný Jónsdóttir

26. september 2004

I´M BACK!!!!!!

Loksins, loksins er ég komin aftur. Ég semsagt braut á mér baugfingur hægri handar þann 21. ágúst síðast liðinn og hef átt í erfiðleikum að "pikka" síðan þ.e. það hefur gengið ósköp hægt og þar sem ég á því ekki að venjast þá þótti mér það leiðinlegt og pikkaði ekki meira en nauðsynlega þurfti. Nú er ástandið þannig að eftir fjórar vikur í spelku fékk ég þannig umbúðir sem ég get smeygt af fingrunum til að liðka þann brotna og nú viku eftir að ég fékk þær umbúðir er fingurinn orðinn það góður á ég á í litlum vandræðum með að pikka og hraðinn er kominn aftur.

Eini kosturinn sem ég sá við þetta brot er að þar sem ég hef verið í vettvangsnámi í Giljaskóla hef ég átt í litlum vandræðum með að kynnast nemendum skólans þar sem þeim lék forvitni á að vita hvað hefði eiginlega komið fyrir mig. Mér fannst að vísu leiðinlegt að segja hvernig þetta atvikaðist en ég var sem sagt í reiptogi og fannst mér orðið skemmtilegra að segja að ég hafi barið karlinn, en auðvitað sagði ég það ekki við börnin aðeins vini og kunningja. Þið sem þetta lesið getið bara valið hvor sagan er trúverðugri.

Ég ætla ekki að tjá mig um kennaraverkfall að svo stöddu en það gæti gerst fljótlega.